"Það er mikla ánægju að finna í gagnlausri vitneskju."
|
 |
... ÆÆÆÆJ ÉG NENNI EKKI!
Posted at Thursday, April 06, 2006 by kristas
Permalink
Nenni ekki að blogga almennilega svo ég tek áskoruninni bara..
Fjögur störf sem ég hef unnið:
1. Hótelstörf á Bjargi
2. Hótelstörf á Hótel Eddu
3. Frystihússtörf
4. Sjoppustörf í Shell- Egs
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
1. Fáskrúðsfjörður - Skólavegur 85a
2. Fáskrúðsfjörður - Hlíðargata 55
3. Reykjavík - Hvar litla holan??
4. Hraunbær 112
Fjórir sjónvarpsþættir sem ég fíla:
1. Strong medicin (get ekki beðið eftir þættinum sem byrjar eftir klukkutíma og þrjú korter!)
2.Desperate housewifes
3. House
4. Verður maður ekki að segja nágrannar?
Fjórir staðir sem ég hef ferðast til í fríi:
1. Benidorm
2. Holland/Þýskaland
3. Danmörk
4. (Svíþjóð)
Fjórar vefsíður sem ég skoða daglega:
1. nemedur.inna.is
2. b2.is
3. kristan.blogdrive.com
4. .. og svo alla linkana þaðan :)
Fjórar uppáhaldsmatartegundir:
1. Kjúklingabringu Tortillas
2. Pizzan hennar mömmu
3. Makkarónugrautur
4. Sunnudagshryggurinn hennar mömmu
Fjórir cd sem ég gæti ekki verið án:
1. Eins og systa, gæti verið án allra cd.
2. .. en gæti hins vegar ekki verið án ipodsins!
3.
4.
Rakel, þú mátt gera þetta.. allir aðrir búnir að þessu..
Posted at Wednesday, February 08, 2006 by kristas
Permalink
Blogg segiði?
Jæja, nýtt ár og allt saman.. Þá er skólinn byrjaður, líst svona þokkalega á önnina, það er að segja ef maður nær upptökuprófi í stærðfræði.. well, ef ekki, þá má hún Soffía eiga heiðurinn að því að hafa eyðilagt minn menntaskólaferil!
En þú veist vel Rakel mín að það þýðir ekkert að neyða mig svona til að blogga.. bara bíða þangað til rétti bloggandinn kemur yfir mann ;)
En þar sem bloggandinn er ekkert að láta sjá sig, ætla ég bara að punkta niður svona það helsta frá liðnu ári :)
Byrjaði 2. önnina mína í ME strax á nýju ári. Gerðist svosem ekkert merkilegt þannig séð.. Barkinn, ak..?, böllin og það allt..
Fékk panic attack strax að loknum skóla. Vissi ekkert hvar ég átti að vinna!
Byrjaði í frystihúsinu, entist fram að hádegi á fyrsta degi. Tók heilan dag í rölt um Egilsstaði í leit að vinnu. Var í um viku fríi þar til ég fékk símtal frá Shell. Jess? Entist í viku þar! Flutti til Steinars, fékk þá vinnu á Hótel Eddu and stayed there :) Frábær félagsskapur, fín vinna, góóóóð laun :)
Vann eins og mofo fram að frönskum dögum, endalaust gaman, bjó með Steinari í rútunni alla helgina.
Danmerkurferð, sem var svona líka frábær! Strikið á hverjum degi, verslað já verslað.. Legoland í grenjandi rigningu, beil á hótelgistingu í Billund, hótelstýran kreeeeeeeise.. hehe..
Kom heim, vann meira.. Fékk þær fréttir að systa væri ólétt, gleðitárin voru ófá þá ;)
Skólinn byrjaði! Þokkalegt alveg.. Engin vist = meiri peningar.
Búin að vera með Steinari í 1 heilt ár í okt.. Hann hlýtur nú að fara gefast upp! ;)
Óvissuball hérna heima, svoooo gaman.. 1.des og þannig, sem ég átti einmitt afmæli á! Fékk bílpróf og fékk kaggann minn ;) Rakel kom heim :)
Próf, jólafrí, Rakel kom aftur :) Vinna í smiðjunni fyrir jól..
Jólin sjálf! Fékk Dúdda (iPodinn hefur fengið þetta fallega nafn..) minn sem ég elska svooo heitt :)
Áramótin, gaaaaaaaaman! Partý hjá Ingólfi og svo "ball án hljómsveitar" í Skrúð ;)
Og þá er það bara komið.. ætla að bæta við hérna e-rju svona klukk dæmi sem Sigurveig á heiðurinn af..
Sjö hlutir sem ég ætla að gera þegar ég verð stór….
1. Læra eitthvað skemmtilegt
2. Eignast barn
3. Byggja mína eigin höll, með sundlaug í garðinum :)
4. Eiga fullt af peningum
5. Læra að elda almennilega!
6. Fara oft til útlanda með fjölskyldunni
7. Og þegar ég verð enþá stærri, enda á elliheimili með Rakel ;)
Sjö hlutir sem að ég get gert…
1. Fallið í stæ 303
2. Eins og Sigurveig, pirrað mig mikið á tilgangslausustu hlutum í heimi…
3. Fundist gaman að fara í sturtu
4. Elskað systir mína og bróðir minn útaf lífinu þó þau geri mér oft lífið leitt!
5. Horft á alla læknaþætti
6. Setið á sama stað og talað við Rakel í 8 klukkutíma, án þess að leiðast eða hreyfast!
7. Horft á glæstar vonir og leiðarljós, bara til þess að hneykslast..
Sjö hlutir sem að ég get ekki gert..
1. Misst af Strong Medicin!!
2. Hugsað um að það sé hægt að telja endalaust án þess að verða reið og pirruð..
3. Spennt upphandlegs"vöðvana"..
4. Sofið vel ein
5. Setið heilan íslenskutíma án þess að leiðast
6. Keyrt og gert eitthvað annað í einu!
7. Borðað bjúgu eða kjötbollur
Sjö hlutir sem ég sé akkúrat núna.
1. Bleikur tölvuskjár
2. Hárspennu
3. Símann minn
4. Mynd af mér og Rakel í náttfötum, í grænum loðnum myndaramma ;)
5. u.þ.b 30 vasareikna
6. Toppinn minn, fyrir auganu..
7. Ónýtt en samanteipað lyklaborð
Sjö orð eða setningar sem að ég segi oft…
1. Hi
2. Ertað grínast..
3. Plííííís :)
4. Ég er svo þreyttur...
5. Frábært…
6. Ég er svangur
7. Hvar ertu?
Sjö hlutir sem heilla mig við hitt kynið...
1. Persónuleikinn…
2. Augabrúnirnar
3. Glaðlyndi.. segir maður það..? og jákvæðni.
4. Líkamsbyggingin ;)
5. Hárið
6. Fötin.. skapa manninn?
7. Ooog eins og Sigurveig, hvernig maðurinn er á sig kominn í mannlegum samskiptum!
jæææja, þér ætti ekki að hafa leiðst við þennan lestur Rakel mín! :)
Posted at Friday, January 13, 2006 by kristas
Permalink
Comentaðu nafninu þínu og..
1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt
Posted at Tuesday, December 06, 2005 by kristas
Permalink
Jæja, þá hef ég náð 17 ára aldrinum + 1 dag og hef það bara þokkalegt..!
Helgin búin að vera eintóm veisla, 1.des á föstudaginn, kökur í gær, og besti mömmumatur í hele verden í dag :) Ekki frá því að ég hafi grætt fáein kíló í afmælisgjöf :)
Rakel kíkti svo austur um helgina sem toppaði auðvitað allt, og bílprófið.. sem var nú reyndar eitthvað vesen þar sem tölvukerfið á löggustöðinni var víst ekki uppá sitt besta og það leit allt út fyrir að ég fengi ekki að setjast undir stýri og rúnta á kagganum á afmælisdaginn sjálfan, en það reddaðist nú ;)
Hef samt ekkert að segja, nema bara takk fyrir helgina allir sem komu nálægt henni! ;)
Enda þetta svo á einni mynd af okkur þríeykinu.. :)
Posted at Sunday, November 27, 2005 by kristas
Permalink
Langar að henda inn hérna einu bloggi, tileinkað einni manneskju, Berglindi bestustu frænku í öllum geiminum! ;)
Ég var ekki einu sinni orðin eins árs þegar litla ljóskan kom í heimin, og eftir því sem ég best veit og man, höfum við verið ágætis vinkonur síðan :) Nema kannski um 5-6 ára aldurinn, þegar hún og hin besta frænkan, Margrét, voru ekki alveg að njóta þess að hafa mig með, eða þá að ég hafi bara verið svona hrikalega fýlugjörn ;) Við áttum sko ekki fáar stundir saman á yngri árunum, man enn eftir þegar við vorum hoppandi í hjónarúminu á Sunnuhvoli (man líka eftir gatinu í dýnunni eftir eldspýtuna.. hehe..), þegar hún flutti í brúna húsið og við fundum upp svartagaldur, sem bjó í bílskúrnum hennar og einhvern veginn tengdist svart málningarstrik á veggnum honum, fórum oft til hans með vatn og alls konar blóm og gras í dúkkubala inn í bílskúr til hans og fannst alltaf eins og eitthvað hefði nú minnkað í balanum frá síðustu heimsókn! ;) Og þegar við sátum við hvítu kommóðuna í bláum sokkabxum og hringdum í 5885522, af því við heyrðum þetta alltaf í sjónvarpinu.
Man svo næst eftir að hún flutti í hvíta og græna húsið, það sem við brölluðum ekki! Kassabílnum sem við smíðuðum ásamt öðrum, sem vat útbúinn hinum ýmsu nauðsynjum, t.d. nestisboxi, á ég sennilega aldrei eftir að gleyma ) Eins með þegar við náðum okkur í dagblaðið, tókum úr því blaðið með öllum "þjónustunúmerunum", og hringdum í nokkur vel valinn númer, og földum síðan blaðið undir koddanum hjá Rabba frænda hennar ;) Setning "Ég er með rósatattú á brjóstinu og kóngulóatattú á rassinum" situr föst í minninu eftir þetta!
Svo komu slæmu tímarnir, auðvitað þurfti hún að flytja suður! Mig minnir endilega að ég hafi kvatt hana á Egilsstöðum eftir e-ð fótboltamót, þegar hennar leið lá suður, en mín heim á Fásk. En ferðirnar í Fellasmárann voru þó margar sem algjörlega reddaði málunum ;)
Síðasta sumar fórum við svo til Spánar með hele familien auðvitað, og ætli það séu ekki með þeim bestu vikum sem ég hef upplifað, alveg endalaust gaman að geta verið saman aftur, og það allar þrjár! Öll ljóskukommentin og snilldarhugmyndirnar og furðulegu pælingarnar.. og bara allt RUGLIÐ! ;) Núna í sumar fórum við svo til Danmerkur, deildum saman herbergi ásamt nokkrum kóngulóm, og það var ekkert síðri ferð, enþá fleiri ljóskukomment, snilldarhugmyndir og furðulegar pælingar! Á einhvern hátt samt finnst mér við vera svolítið líkar ;)
Berglind mín, þú ert æðisleg og yndisleg og bestasta frænka í öllum geiminum! ;) .. Vona að þetta sé nóg fyrir þig ;)
Posted at Saturday, November 12, 2005 by kristas
Permalink
Daginn!
Ég veit ekki hvað ég er að byrja að blogga, hef sama og ekkert að segja! Ekki mikið gerst síðan síðast, óvissuball, drukknun í heimanámi (sem stendur reyndar enþá yfir..) og aðallega bara leiðindi! Kominn snjór, sem er ekkert gaman. Er bara búin að halda mig inni alla helgina, nema auðvitað skrapp ég í kaupfélagið í gær ;)
Þurfti svo að vakna eeeldsnemma (að mínu mati) í morgun, til þess eins að láta segja mér eitthvað sem ég þegar vissi. Jeps, þurfti til háls-nef-og eyrna læknis, eða þurfti þess reyndar ekki neitt! Ég vissi upp á hár hvað hann ætlaði að segja! "Þú ert með sýkingu, þú ert nú bara lasin, þú þarft steradropa, hættu að nota otrivin, vertu þolinmóð, flixonasið/nasonexið virkar ekki strax, prófum þetta alla vega fyrst..". Alveg fáránlegt, PRÓFA ÞETTA FYRST?! er ég ekki búin að fara í þessa f****** sterameðferð 8 sinnum!! Þið megið sem sagt reikna með því að ég verði dauð fyrir jól.
Takk og bless
En nóg af væli, það eru bara alveg að koma jól! Og afmælið mitt eftir aðeins 26 daga, sama með bílprófið, það er að segja ef ég get nokkurn tíman lært að keyra..
Eitt sem ég afrekaði líka í gær.. ÉG PRJÓNAÐI EINN VETTLING! Og verð að bæta því við, að það sem tók Rakel að eina önn í handavinnu að gera (hún kláraði ekki einu sinni.. ;)), tók mig aðeins eitt kvöld! :D Og reyndar mikla þolinmæði, en ég er samt sem áður mjööög stolt ;)
En ég held að málið sé að fara gera e-ð gagnlegt.. sturta, taka mig til eða læra. Held þó að aðalmálið sé að fara upp og horfa á Nágranna!
Posted at Sunday, October 30, 2005 by kristas
Permalink
Hef komist að því að það er bara ekkert voðalega gaman að vera lasin! Þó svo maður fái að sofa út.. Fannst þetta alltaf voða fjör þegar ég var lítil, því þá fékk ég alltaf litabók eða púslu eða eitthvað álíka skemmtilegt. Núna fær maður ekkert nema skróp í skólanum. Hversu fáránlegt..
Þó svo maður sitji heima, horfi á margendursýnda þætti á Stöð2 eða dýralífsþætti á RÚV, kemur maður aldrei neinu gagnlegu í verk! Njálan liggur enn ólesin á gólfinu, Animal Farm býður uppá að bíða til betri tíma (..betri tíma sem kemur svo aldrei..) og ég lýsi yfir falli mínu í Stæ 303.
Í stað þess að gera eitthvað sem myndi létta á helginni, svosem læra, lá ég í rúminu til 12, horfði stanslaust á sjónvarpið til 18, og þess má geta að ég borðaði ekki nema 6 ísa á þeim tíma, þakka Kjörís kærlega fyrir mig. Eftir stutta pásu var svo lagt aftur í sófann og horft á sjónvarpið þangað til núna. Sit núna við tölvuna með það á samviskunni að hafa ekki nýtt tímann í neitt gagnlegt og þurfa að sitja heima um helgina með Njálu í annari hendi og AF í hinni, stærðfræðina einhversstaðar og hugsa til Rakelar og Eydísar bakandi eitthvað gott, og þegar ég segi gott þá meina ég aðallega vandræði.
En yfir í annað, langt síðan ég bloggaði, hef ekki gert mark bloggvert síðan síðast svo ég sá lítinn tilgang í yfirfæra líf mitt á veraldarvefinn, þar sem það hefur verið einkar dapurlegt! Skrapp reyndar til höfuðstöðva Íslands. Svosem ágætt, aðallega bara hittingur hingað og þangað, bíó, keila, Limalindin og Kringlan.
Bíóferðin var fyndin, pirrandi og allt saman. Allt um það á
blog.central.is/kjaninn. Og svo rústaði ég auðvitað keilunni.
En þá er ég búin að ropa uppúr mér þessu fáááranlega bloggi, og trúið mér, það var erfitt!
Kveð bara hér..
Kristrún veika
Posted at Thursday, October 13, 2005 by kristas
Permalink
..og ég sem hélt ég væri sloppin, en nei, 5 gagnlausar upplýsingar um mig takk!
Ég á afmæli sama dag og Tina Turner, 26. nóv.. (..og ekki gleyma því..)
Ég er með litlar holur á utanverðum lærunum, vill meina að þetta séu læknamistök! ;) Ætla að kæra, og fá fullt af peningum.
Ég hef aldrei hlegið jafn mikið og þegar Rakel flaug fagmannlega á hausinn í fljúgandi hálku, ekki meira en 5 sek. eftir að ég benti henni vinsamlega á það að það væri nú betra aðra leið og hún benti mér (ekki svo vinsamlega) á að ÞROSKAST!
Ég söng alltaf Frost er úti fuglinn minn, þegar ég fór að gráta þegar ég var lítil, við mikinn fögnuð viðstaddra auðvitað!
Ég er að fara til Reykjavíkur á eftir, vonandi.
Ætla ekki að klukka neinn.. eins og Rakel sagði, þá verður þetta að stoppa einhvers staðar! :)
Posted at Thursday, September 29, 2005 by kristas
Permalink
Sjáið gluggann í miðjunni
, þetta er jú glugginn í tilvonandi herberginu mínu á reyðarfirði! :) Díll systa? ;)
Annars ákvað ég bara að henda inn smá bloggi þar sem ég er algjörlega búin með sjónvarpsglápskvótann minn þessa helgina. Þakka stöð2 fyrir hjálpina. Alveg ótrúlegt hvað það er alltaf gott að koma heim til sín, þó svo maður geri ekki neitt nema liggja uppí sofa með teppi og fjarstýringu. Mér leiðist yfirleitt alltaf frekar mikið þegar ég kem heim, en samt er þetta svooo notalegt! Bara það að þurfa ekki að gera neitt, ekkert mikilvægt alla vega, þurfa ekki að vakna fyrir ákveðinn tíma, geta hangið á náttfötunum allan daginn (..klukkan er 21:18 og ég ekki búin að klæða mig.. úps..), maður getur þess vegna sleppt því að skipta um föt og vera bara í náttfötunum alla helgina! Ég er greinilega mjög heimakær. Á þriðjudaginn var ég strax farin að hlakka til að koma heim. Til að láta mér leiðast. Það er bara svo gott!
Kristrún heimakæra
Posted at Saturday, September 17, 2005 by kristas
Permalink
|